Innréttingaljós frá Halemeier

Rétt lýsing getur aukið notagildi innréttingarinnar, dregið fram efni og form og skapað allt aðra stemningu í rýminu. HEGAS býður fjölbreyttar Halemeier lausnir, allt frá ljósaborðum og innfelldum ljósum yfir í ljósaprófíla, stýringar og fylgihluti.

Auk lagerúrvals sérpöntum við lausnir fyrir arkitekta, innréttingaframleiðendur og önnur sérhæfð verkefni.

Prófíll fyrir ljósaborða / ChannelLine A

Álprófíll fyrir ljósaborða með opal ljósahlíf. Fæst í 4 metra lengd. Hentar bæði fyrir utanáliggjandi uppsetningu og innfellingu í 16 mm efni.

Prófíll fyrir ljósaborða / ChannelLine C

Álprófíll fyrir ljósaborða með opal ljósahlíf. Fæst í 3 metra lengd og er ætlaður til innfellingar í 16 mm efni. Svartur prófíll fáanlegur með sérpöntun.

Prófíll fyrir ljósaborða / ChannelLine D

Prófíll fyrir ljósaborða með opal ljósahlíf. Fæst í 3 metra lengd, svartur eða með áláferð. Hentar bæði fyrir utanáliggjandi uppsetningu og innfellingu í 16 mm efni.

Prófíll fyrir ljósaborða / ChannelLine G/G2

Álprófíll fyrir ljósaborða með opal ljósahlíf. Fæst í 3 metra lengd og hentar bæði fyrir utanáliggjandi og innfellda uppsetningu í 16 mm efni. Svartur prófíll fáanlegur með sérpöntun.

Prófíll fyrir ljósaborða / ChannelLine H

Álprófíll fyrir ljósaborða með opal ljósahlíf. Fæst í 3 metra lengd og er ætlaður fyrir utanáliggjandi uppsetningu í 90° horn.

Prófíll fyrir ljósaborða / ChannelLine i / i2 / i3

Álprófílar fyrir ljósaborða með opal ljósahlíf. Fást í 3 metra lengd, svartir eða með áláferð. Henta fyrir mismunandi utanáliggjandi og innfelldar útfærslur í 16 mm efni.

Ljósaborði / Versa Inside 1200

12V LED ljósaborði fyrir jafna lýsingu í innréttingum og ljósaprófílum. Fæst í 3 og 5 metra lengdum, í NeutralWhite (4000K) og WarmWhite (3000K), eftir útfærslu. 9,6 W/m.

Ljósaborði / Versa Linear 1200

Öflugur 12V LED ljósaborði fyrir jafna og samfellda lýsingu í innréttingum og flötum ljósaprófílum. Fæst í mismunandi litahitastigi og 3 eða 10 metra lengdum. 12 W/m og >90 Ra litendurgjöf.

Ljósaborði / Versa Fix 4x6

Mjór og sveigjanlegur 12V LED ljósaborði sem fræsist í 4 × 6 mm rauf. Hægt að stytta eftir þörfum. Fæst í 3 og 5 metra lengdum, í NeutralWhite (4000K) og WarmWhite (3000K), eftir útfærslu. 6 W/m.

Ljós / EcoSpot 58

Innfellt LED innréttingaljós, Ø63,7 mm með 58 mm úrtaki. Stáláferð og hlutlaus lýsing (4000K). 12V DC. 1,5 W.

Ljós / SideSpot 35

Innfellt LED innréttingaljós, Ø40 mm með 35 mm úrtaki. Svart. Fæst í heitri (2700K) og hlutlausri (4000K) lýsingu. 12V DC. 1,4 W.

Ljós / Swing

Innfellt og stillanlegt LED innréttingaljós, Ø78 mm með 68 mm úrtaki. Ál áferð og hlutlaus lýsing. 12V DC. 2,5 W.

Ljós / HV DownLite

Innfellt LED innréttingaljós, Ø78 mm með 68 mm úrtaki. Stáláferð og hlutlaus lýsing. 230V. 5,5 W.

Spennubreytar / Ballast 12V DC

Spennubreytar fyrir 12V DC innréttingaljós frá Halemeier. Fást í mismunandi útfærslum eftir afli og fjölda ljósa.

Spennubreytar / Ballast 24V DC

Spennubreytar fyrir 24V DC innréttingaljós frá Halemeier. Fást í mismunandi útfærslum eftir afli og fjölda ljósa.

Framlengingar og fjöltengi / Leads 12 & 24V DC

Framlengingar, tengileiðslur og fjöltengi fyrir 12V og 24V innréttingaljós frá Halemeier.

Hurðarofi / IR Door Switch 12 Volt DC

IR hurðarofi fyrir 12V innréttingaljós. Hentar meðal annars fyrir lýsingu sem á að kveikna og slökkna við opnun og lokun.

Hurðarofi og tengibox / MultiSwitch2 Contact

Rofi og tengibox fyrir stýringu innréttingaljósa í MultiSwitch2 kerfi Halemeier.

Dimmanlegur rofi / Dimmer angle element

Dimmanlegur rofi fyrir stýringu innréttingaljósa frá Halemeier.

Fjarstýrður rofi / 4-Mitter Smart

Þráðlaus stýring fyrir samhæfð Halemeier ljósakerfi.

Fjarstýrður rofi / S-Mitter Basic MultiWhite Smart

Þráðlaus stýring fyrir samhæfð MultiWhite ljósakerfi frá Halemeier.

Fjarstýrður rofi / S-Mitter Smart

Þráðlaus stýring fyrir samhæfð Halemeier ljósakerfi.

Fjarstýrður rofi / X-Mitter Smart

Þráðlaus stýring fyrir samhæfð Halemeier ljósakerfi.

USB gengill / USB socket

USB tengill fyrir innréttingar og húsgögn. Hentar til að bæta hleðslumöguleika snyrtilega inn í innréttingu.

Fróðleikur um lýsingu

LJÓSABÆKLINGUR HALEMEIER 2025

Magic 2021

Smelltu á myndina til að skoða ljósabækling.