
MitreBond er hraðvirkt lím og penni fyrir samsetningu
4. nóvember, 2025
FENIX fyrir nútímalega hönnun innréttinga
22. janúar, 2026HEGAS kynnir WingLine L fellihurðakerfi frá Hettich, betrumbættan búnað á verulega lækkuðu verði. Fellihurðakerfið er nú aðgengileg lagervara hjá HEGAS.
Kerfið opnar bæði stór og smá skápasvæði með einni mjúkri hreyfingu og hentar vel þar sem áhersla er lögð á fallega hönnun og góða yfirsýn þegar skápahurðir eru opnaðar, t.d. á eldhús- og fataskápum.
WingLine L hentar fyrir hurðir allt að 600 mm á breidd og 2400–2600 mm á hæð. Með þrýstiopnunarlausn opnast hurðir í einu samfelldu flæði, sem skapar svokölluð panorama-áhrif, þar sem allt innihald skápsins verður aðgengilegt samtímis.
Kerfið er einfalt í notkun og hreyfingin er mjúk og hljóðlát, með dempun sem eykur bæði notendaupplifun og endingu. Í mörgum útfærslum er ekki þörf á neðribraut, sem veitir aukið frelsi í hönnun og uppsetningu.
WingLine L hentar vel í fataskápa, eldhúsveggskápa, kaffistöðvar, falin eldhús og aðrar sérlausnir þar sem bæði fagurfræði og virkni skipta máli. Íhlutir eru fáanlegir í litum sem falla vel að nútímalegri innréttingahönnun.






You must be logged in to post a comment.