
NÝTT í FENIX – vaskar í ýmsum litum
3. febrúar, 2021
Silverlam er nýtt yfirborðsefni frá Arpa HPL sem rannsóknir sanna að hindri vöxt baktería á yfirborðinu og að yfir 99,9% af bakteríum og sýklum hurfu eftir 24 tíma. Við bjóðum einnig laserkanta frá Rehau með sömu bakteríueyðandi eiginleika. Með þessum eiginleikum, henta þessi efni sérlega vel fyrir heilbrigðisstofnanir, matavælaiðnað, skóla og þar sem hreinlæti er mikilvægt.
Við vitum að bakteríur flytjast á milli manna eða smitast frá hlutum og yfirborðum hluta.
Við vitum einnig að reglulegar hreingerningar eru nauðsynlegar en duga ekki alltaf til.
Við þurfum að koma í veg fyrir að bakteríur setjist í yfirboð og smiti þaðan.
Silverlam plöturnar eru framleiddar með Arpa Silveright tækni sem húðar yfirborðið með silfurjónum og myndar með því 99,9% sýklaeyðandi eiginleika. Þessi auka vörn varnar því að hættulegar bakteríur lifi á yfirborðinu jafnvel þar sem erfitt er að komast að í þrifum.
Arpa Silverlam uppfyllir lífræðilegar kröfur um hollustuhætti og er því mjög öruggt fyrir allan matvælaiðnað svo sem kjötvinnslur, fiskbúðir o.s.frv. en líka að sjálfsögðu í öll eldhús.
Silverlam er einnig NSF vottað og þar með hentar það vel fyrir heilbrigðisþjónustu, rannsóknastofur, skurðstofur, heilsugæslu og alls staðar þar sem hreinlæti skiptir öllu máli.
Silverlam er fáanlegt í ýmsum litum og áferðum sem hægt er að sérpanta fyrir stærri verkefni og framleiðslu. Verðhagkvæmni helst í hendur við magn sérpöntunar auk þess sem framleiðandi miðar við lágmarksmagn á stökum pöntunum.
Opnunartími
Mánud.–fimmtud: 8–17
Föstudaga: 8–16
© Hegas ehf · Smiðjuvegi 1 · 200 Kópavogur · Sími 580-6700 · hegas@hegas.is · Vefur unninn af AXA
You must be logged in to post a comment.