
Lýsing sem hluti af innréttingunni
22. september, 2026HEGAS hefur enn á ný hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Fyrirtækið hefur verið í þessum hópi samfellt frá upphafi viðurkenningarinnar árið 2010, eða í 17 ár.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði um fjárhagslegan styrk, stöðugleika og traustan rekstur. Aðeins 2,5% íslenskra fyrirtækja standast kröfur Creditinfo árið 2026.
Frá stofnun árið 1988 hefur HEGAS lagt áherslu á að þjóna íslenskum tréiðnaði með vönduðu vöruúrvali, faglegri ráðgjöf og áreiðanlegri þjónustu. Langvarandi samstarf við viðskiptavini og öfluga erlenda birgja hefur verið mikilvægur þáttur í uppbyggingu og þróun fyrirtækisins.
Það er okkur mikils virði að hljóta þessa viðurkenningu ár eftir ár. Hún endurspeglar þann stöðugleika og metnað sem við leggjum áherslu á í daglegum rekstri og hvetur okkur til að halda áfram á sömu braut.
Við þökkum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir þeirra mikilvæga framlag og traust í gegnum árin.
Framúrskarandi fyrirtæki 2010–2026 – 17 ár í röð.



You must be logged in to post a comment.