580 6700

hegas@hegas.is

Stilltu sökkulfætur án þess að skríða undir skápinn

18. september, 2026

Stilltu sökkulfætur án þess að skríða undir skápinn

18. september, 2026
Sýna allt

Lýsing sem hluti af innréttingunni

Góð lýsing í innréttingum snýst ekki aðeins um að sjá betur. Rétt staðsett ljós geta aukið notagildi, dregið fram efni og form og orðið hluti af hönnun innréttingarinnar sjálfrar.

Halemeier býður fjölbreyttar lausnir fyrir lýsingu í innréttingum – allt frá ljósaborðum og ljósaprófílum yfir í innfelld ljós, stýringar og sérlausnir fyrir einstök verkefni.

Hjá HEGAS fæst úrval innréttingaljósa frá Halemeier og jafnframt sérpöntum við lausnir fyrir stærri eða sérhæfð verkefni.

Skoða innréttingaljós hjá HEGAS →

Ljósaborðar sem falla inn í hönnunina

Versa ljósaborðarnir frá Halemeier gefa fjölbreytta möguleika við lýsingu í skápum, hillum og öðrum innréttingum.

Með ChannelLine ljósaprófílum er hægt að samþætta lýsinguna snyrtilega inn í innréttinguna og skapa jafna og samfellda lýsingu.

HEGAS býður meðal annars Versa Inside 1200 og Versa Linear 1200 ásamt ljósaprófílum og öðrum búnaði fyrir mismunandi útfærslur.

Skoða úrval innréttingaljósa →

CircleLite 78 – fyrir verkefni þar sem smáatriðin skipta máli

Fyrir arkitekta, innanhússhönnuði, innréttingaframleiðendur og aðra fagaðila býður Halemeier einnig fjölmargar lausnir sem hægt er að velja sérstaklega fyrir hvert verkefni.

CircleLite 78 er dæmi um lausn frá Halemeier fyrir verkefni þar sem lýsingin er hugsuð sem samþættur hluti af innréttingunni.

CircleLite 78 er ekki hefðbundin lagervara hjá HEGAS, en við sérpöntum hana ásamt fjölmörgum öðrum lausnum frá Halemeier, allt eftir þörfum hvers verkefnis.

Skoða CircleLite 78 hjá Halemeier →

Einföld lausn fyrir minni verkefni

Ekki þurfa öll verkefni sérlausn.

EcoSpot 58 er vinsælt 3ja ljósa LED ljósasett frá Halemeier sem hentar vel í skápa, hillur og aðrar innréttingar. Settið inniheldur þrjú ljós, 12V spennubreyti og tengibúnað og fæst í netverslun HEGAS. 

Skoða EcoSpot 58 í netverslun →

Lýsing fyrir næsta verkefni

Hvort sem verið er að leita að einfaldri lýsingu fyrir eina innréttingu eða lausn fyrir stærra verkefni getur HEGAS aðstoðað við að finna hentuga útfærslu.

sala@hegas.is
580 6700