Felli- og rennihurðafittings

HEGAS býður upp á vandað úrval af felli- og rennihurðafittings fyrir innréttingar, skápa og sérlausnir. Lausnirnar henta jafnt eldhúsum, fataskápum, geymslum og öðrum rýmum þar sem áhersla er lögð á góða nýtingu pláss, mjúka hreyfingu og endingargæði.

Fellihurðakerfi

Fellihurðir eru hentugar þegar opna á stór skápasvæði á einfaldan og aðgengilegan hátt. Með einni mjúkri hreyfingu er hægt að opna bæði smáar og stórar hurðir og fá fulla yfirsýn yfir innihald skápsins.

WingLine L er nýjasta kynslóð fellihurða

WingLine L frá Hettich er nútímalegt fellihurðakerfi sem sameinar fallega hönnun, notendavæna virkni og áreiðanlegan búnað.

WingLine L hentar sérstaklega vel fyrir:

  • Eldhúsinnréttingar

  • Fataskápa

  • Háa og breiða skápa þar sem krafist er góðs aðgengis

Kerfið er hannað fyrir mjúka og samfellda opnun, með stöðugleika og langan líftíma að leiðarljósi.

WingLine L er aðgengileg lagervara hjá HEGAS.

WingLine 230

WingLine 230 er fellihurðakerfi sem hentar sérstaklega vel í fataskápa og einnig sem lausn á milli rýma. Kerfið býður upp á mjúka og stöðuga opnun og lokun og er góður kostur þar sem óskað er eftir hagnýtri og fallegri lausn sem nýtir rýmið vel.

Eldri WingLine lausnir

HEGAS býður einnig upp á eldri útgáfur af WingLine fellihurðakerfum. Þær henta vel við:

  • Endurnýjun eldri innréttinga

  • Verkefni þar sem óskað er eftir hefðbundnum lausnum

Sölufólk HEGAS veitir ráðgjöf um hvaða lausn hentar best hverju sinni.

Rennihurðakerfi frá Hettich

Rennihurðakerfi eru klassísk og rýmisparandi lausn sem hentar bæði fyrir heimili og atvinnuhúsnæði. Þau eru sérstaklega vinsæl í fataskápum, geymslum og innréttingum þar sem einföld og áreiðanleg hreyfing skiptir máli.

SlideLine rennihurðakerfi

SlideLine er vörulína af rennihurðakerfum frá Hettich, hönnuð fyrir skápa, innréttingar og rýmaskiptingar. Sameiginleg grunnhugmynd kerfanna er neðribrautar lausn, þar sem burður og rennsli hurða liggja í neðri braut og tryggja stöðuga og áreiðanlega notkun.

SlideLine kerfin eru fáanleg í mismunandi útfærslum eftir stærð hurða og efni, svo auðvelt er að velja lausn sem hentar hverju verkefni.

SlideLine 55

SlideLine 55 er neðribrautar rennihurðakerfi sem hentar fyrir minni og meðalstórar hurðir, allt að 1,5 m á hæð. Kerfið er algeng lausn í fataskápum og innréttingum þar sem óskað er eftir einfaldri og traustri rennilausn.

SlideLine 56

SlideLine 56 byggir á sömu grunnhugmynd og SlideLine 55, en er hannað fyrir stærri hurðir, allt að 2,0 m á hæð. Kerfið veitir aukinn stöðugleika og hentar vel þar sem þörf er á burðarmikilli rennihurðalausn í skápum og innréttingum.

SlideLine 97 fyrir glerhurðir

SlideLine 97 er neðribrautar rennihurðakerfi sem er sérstaklega ætlað fyrir glerhurðir. Kerfið tryggir örugga festingu og mjúka rennslu og hentar vel bæði í skápum og sem lausn á milli rýma.

Coburn rennihurðakerfi

HEGAS býður einnig upp á rennihurðakerfi frá Coburn Sliding Systems. Coburn kerfin eru þekkt fyrir styrk og endingargæði og henta vel fyrir:

  • Stærri og þyngri hurðir

  • Sérlausnir og krefjandi verkefni

Kerfin eru fáanleg m.a. í allt að 300 cm lengd og eru algeng í verkefnum þar sem gerðar eru auknar kröfur til burðarþols og stöðugleika.

Sölufólk HEGAS veitir ráðgjöf um hvaða lausn hentar best hverju sinni.

Rennihurðakerfi – Häfele Slido D-Line43 80M

Häfele Slido D-Line43 80M er vandað og endingargott rennihurðakerfi fyrir eina hurð, hannað fyrir nútímalegar innréttingar þar sem hljóðlát og mjúk hreyfing skiptir máli. Kerfið hentar jafnt fyrir heimili sem atvinnurými, með falinni brautalausn sem gefur hreint og látlaust útlit.

Kerfið er ætlað fyrir hurðir allt að 80 kg og tryggir stöðuga og áreiðanlega hreyfingu með nákvæmri hönnun og gæðaíhlutum frá Häfele.

Helstu eiginleikar
  • Fyrir eina rennihurð

  • Hámarks hurðarþyngd: 80 kg

  • Mjúk og hljóðlát hreyfing

  • Falin brautalausn fyrir hreint og látlaust útlit

  • Traust og endingargóð hönnun

  • Nútímalegt útlit

Í boði hjá HEGAS
  • Brautarlengd: 1100 mm

  • Brautarlengd: 1800 mm

(Aðrar lengdir og aukahlutir er hægt að sérpanta)

Notkunarsvið
  • Léttir milliveggir
  • Millihurðir (milli rýma)

  • Innihurðir
Tæknilegar upplýsingar
  • Hurðarþykkt: 25–43 mm
  • Toppfest rennikerfi, botnleiðari valfrjáls
  • Hæðar- og hliðstilling möguleg eftir uppsetningu

Sölufólk HEGAS veitir ráðgjöf um hvaða lausn hentar best hverju sinni.

Ráðgjöf og val á lausnum

Hvort sem um er að ræða fellihurðir eða rennihurðir, aðstoðar HEGAS við að velja rétt fittings út frá:

  • stærð og þyngd hurða

  • notkun og álagi

  • efnisvali og hönnun

Hafðu samband við starfsfólk HEGAS fyrir frekari upplýsingar eða ráðgjöf varðandi lausnir sem henta þínu verkefni.